hummm
Ands...... var búin að skrifa helling og ýtti óvart á einhvern takka og hvissbang allt farið :(.
Já annar er lítið að frétta hér af bæ, nema stæðsta pælinginn er að flytja út og er eilla bara nánast ákveðið þurfum bara að finna okkur vinnu. Ekki það að ég sé búin að missa vinnuna, langt í frá.
Ótrúlegt hvað maður getur verið forvitinn, ég er að deyja mig hlakkar svo til að vita hvað Gústi sé að bralla fyrir mig í dag? Hann er allavegana búin að vera óvenjulengi að ná í símann sinn niðrí vinnu þar sem að hann gleymdi honum þar í gær.
Fórum í vesturbæjarlaugina í gær, geggjað kósí, bleik ljós í lauginni, en ég hélt að Gústi væri að reyna að sjóða mig eða frysta. Hann náttla fer beinustu leið ofaní heitasta pottinn og ég var ekkert að kíkja á hita stigið og skellti mér bara ofaní til hans en shit þetta var sko helvíti fokking fokk heitt mig sveið í TÆRNAR! Svo fórum við ofaní barnalaugina og þar var fokk kalt, gafst upp á að vera þar og fór ofaní 38-40° pottinn aaa það var notalegt, passlega heitt fyrir mig :)
Nóg að gera.
Ótrúlegt hvað það koma alltaf svona tarnir af verkefnum á mann allt í einu. Ekkert svo langt síðan ég tók mig til og gerði nokkur verkefni fram í tíman og sendi inn en nei það er aftur komin að fleirri verkefna skilum og rannsóknum í sálfræði 203. Get það þar sem að sálfræðin er fjarnám, en með íslenskuna þá get ég bara tekið viku fyrir viku og jiminn einin hvað Brennu-Njálssaga er leiðinleg! En ég ætla að komast í gegnum hana.
Svo næstu tvær helgar er ég að fara í leikhús. Fer á Gosa og Fólkið í blokkinni með Gústa, Köru og Erlu. Held að það eigi bara eftir að verða gaman. Er reyndar búin að sjá Gosa einu sinni áður en það var svo skemmtilegt að ég er alveg sátt við að fara á það aftur! smá upprifjun, bara einsog þegar að maður horfir nokkrum sinnum á sömu bíómyndina :) Svo verða engar fleirri leikhúsferðir fyrren í apríl og maí minnir mig. Þá veður farið á Sannleik með Pétri Jóhanni og svo Harry og Heimi.
Nóg af upplýsingum í bili.
Blondie kveður.
Og hamingjan......
Sólin brennir nóttina, og nóttin slökkvir dag;
þú ert athvarf mitt fyrir og eftir sólarlag.
Þú ert yndi mitt áður og eftir að dagur rís,
svölun í sumarsins eldi og sólbráð á vetrarins ís.
Svali á sumardögum og sólskin um vetrarnótt,
þögn í seiðandi solli og syngur, ef allt er hljótt.
Söngur í þöglum skógum og þögn í borganna dyn,
þú gafst mér jörðina og grasið og Guð á himnum að vin.
Þú gafst mér skýin og fjöllin og guð til að styrkja mig.
Ég fann ei, hvað lífið var fagurt, fyrr en ég elskaði þig.
Ég fæddist til ljóssins og lífsins, er lærði ég að unna þér,
og ást mín fær ekki fölnað fyrr en með sjálfri mér.
Aldir og andartök hrynja með undursamlegum nið;
það er ekkert í heiminum öllum nema eilífðin, Guð – og við.
Þú gafst mér skýin og fjöllin og guð til að styrkja mig.
Ég fann ei, hvað lífið var fagurt, fyrr en ég elskaði þig.
Ég fæddist til ljóssins og lífsins, er lærði ég að unna þér,
og ást mín fær ekki fölnað fyrr en með sjálfri mér.
Þú gafst mér skýin og fjöllin og guð til að styrkja mig.
Ég fann ei, hvað lífið var fagurt, fyrr en ég elskaði þig.
Ég fæddist til ljóssins og lífsins, er lærði ég að unna þér,
og ást mín fær ekki fölnað fyrr en með sjálfri mér.
Smá uppdeit
Fuerteventura var bara æði, kom heim 19.ágúst. Væri alveg til að hafa svona stemmningu á kvöldin hérna heima einsog á Rock Café þarna úti. Vorum þar öll kvöld, nema ég myndi sleppa drykkjunni hérna heima allavegana á virkum dögum, þó svo að ég sé nú ekkert alltof hrifin af drykkju einsog forðum hehe.
Beið mín mikið verk í vinnunni. Deildin mín var í rúst, tók mig 4 daga að rumpa þessu í gott lag fyrir talninguna. Bíð bara eftir að pólska stelpan komi í vinnuna sem fyrst þannig að ég geti sýnt henni allt sem að viðkemur ostinum, hún á að koma til mín alltaf eftir hádegi og fylla á ostinn. Þá loksins fer ég að geta farið yfir allt sem að ég þarf að fara yfir án þessað vera á brjáluðum hlaupum.
Svo um helgina ætla ég með Heiðrúnu heim í sveitina í réttir. Hef ekki farið í réttir í öruglega 2 eða 3 ár. Það verður öruglega mjög gaman.
Hlakka svo til á morgun að fara í klippingu hef ekki farið í klippingu síðan ég veit ekki hvenær. Maður verður nú að halda sér sætri, get ekki farið að vera einhvað flóka trippi, veit ekki hvert hárið á mér ætlaði úti það varð bara einsog í Leiðarljósi eða Bold and the beautiful, hrokkið eða bara liðið.
Happy happy joy joy
9 og hálfur tími!!!!
En það sem er liðið af sumarfríinu er bara búið að fara í afslöppun og dúllerí. Búin að vera helling uppí Þjórsárdal í hjólhýsinu hjá mömmu og Braga. Það er búið að vera rosalega fínt. Fór þangað uppeftir á miðvikudaginn síðasta og vó ég hélt að ég myndi deyja það var svo heitt sem var nú ekkert skrítið enda 30 stiga hiti. Tók mynd af mælinum til að sanna það hihihi :) Endalaus hamingja, mjög gaman.
Get ekki beðið eftir að fara út og get heldur ekki beðið eftir því að koma aftur heim :)
Nema hlakka ekki til að koma aftur í vinnuna :s nema að það verði allt í gúddí þar, verð ekki happy ef það er allt í rúst og búið að breya heilum helling. Ég vil fá að taka þátt í breytingum sem að tengjast minni deild.
En nóg um það.
Þið sem verið heima á klakanum fáið vonandi bara gott veður.
Sólarlanda skízan kveður :P
12 dagar!!!
Fór á laugardaginn síðasta uppí Þjórsárdal með Heiðrúnu í hjólhýsið sem mamma og Bragi eiga. Þetta hjólhýsi er bara geggjað.
Kom heim í gærdag. Svo er allt byrjað á fullu í trimminu, þarf að drulla mér í sund á morgun, nýta tíman vel á meðan ég er í fríi.
Annars er nú ekki mikið að frétta af manni.
Mar búin að skoppast á reunion 12 júlí sem var bara geggjað gaman og skellti mér á ball, og fékk mér í glas í fyrsta skiptið síðan ég ökklabraut mig. ÓTRÚLEGT EN SATT. Gat ekki staðist freystinguna þegar að ég sá alla hina með bjór dauð öfundaði þau þannig að ég skellti í mig nokkrum öllurum.
Jæja meira seinna.
Niðjamót,13 dagar í Reuiniona og 36 dagar í Fuerteventura.
Frábær helgi afstaðinn, var á risastóru niðjamóti vourm allavegana ca 200 manns þarna og það vantaði nokkra. Ef ég heyrði rétt þá erum við að nálgast 300 og meiri hlutinn af okkur erum við sem komum frá Gíslnýju langömmu en hún átti 3 systur og voru afkomendur þeirra líka. Man að langa langa afi Jóhann en man ekki alveg hvað langa langa amma hét en held alveg öruglega að hún heiti Jónína.
Ótrúlegt hvað maður þekki ættingja sína lítið en þetta ætti að batna núna þar sem að það fá ekki að líða 13 ár á milli þar sem að núna er búið að skipa nefndir sem sjá um þetta og á þetta af vera á 5 ára fresti hér eftir sem ég er mjög sátt með. Þessi helgi var bara vel heppnuð og vil ég þakka þeim sem stóðu fyrir þessu mjög vel fyrir.
Svo eru 13 dagar í reuinion hjá "83 "84 og "85 árg úr Víkurskóla (eða G.S.M (Asnalegu nafnabreytingar þegar að skólanir voru sameinaðir átti bara að hafa Víkuskóli áfram)) Hlakka bara þó nokkuð til því ég held að þetta verði bara gaman maður hefur ekki séð sumt af fólkinu síðan í grunnskóla og margir eflaust breist einhvað, vonandi til hins betra frekar en hitt :)
Svo eru 36 dagar í Kanarí, það verður geggjuð ferð, ég, Bubba og Didda förum út 5.ágúst og svo viku seinna kemur hún Bryndís :)
Stelpur við ætlum í Kamelsafarí! Vætanlega í seinni vikunni efast um að Bryndís vilji missa af því.
Wow
Fátt að frétta af mér. Alltaf að vinna og vesenast.
Bubba og ég erum búnar að vera geggjað duglegar að fara í sund á morgnana og synda hálfan kílómeter áður en við förum í vinnuna, ætlum að reyna að mæta fyrr til að geta náð kílómeter. Svo erum við á fullu í trimminu og líka Didda.
Stæðasta spurninginn sem ég spyr mig að núna er; Hvað er málið með karlpeningninn???? Vita þeir aldrei hvað þeir vilja eða eiga erfitt með að tjá sig??? Frekar þreytandi til lengdar.
Styttist og styttis í utanlandsferðina mikil tilhlökkun í gangi. Allavegana erum við á fullu að plana ferðina fram og til baka hvað við ætlum að gera og svona :) Þetta verður mergjað.
Mismæli
Já það er ósjaldan sem að maður mismælir sig eða skrifar einhverja bölvaða vitleysu í fljótfærni, hér eru nokkur dæmi:
- Það er gat á gatinu!!!!!
(s.s gat á pokanum)
- Gaktur hægt um gleiðar dyr
(gleðinnar dyr)
- ÁKAfastir -ÁkAFasstir
(Vitlaus áhersla á orðið skildi ekkert í því hvað þetta orð þíddi fyrren mér var bent á að ég væri að setja áherslunar á vitlausan stað
-Þeir komast ekki með hælanan þar sem að þeir eru með tærnar
( er víst Þeir komast ekki með tærnar þar sem þeir eru með hælana)
Það væri hægt að skrifa heila bók um mismæli mín um ævina því þetta er engan veginn tæmandi listi hahaha.
En annars er ekki mikið af frétta af mér. Byrjuð að vinna hálfan daginn og það verður víst einhvað áfram, prufaði að vinna heilan dag í gær og það var nú ekkert alltof sniðug hugmynd, því að ekki voru hælanir mínir hrifnir af því og bruna tillfinninginn sem ég var með ávíííííí, bakið fór bara í baklás og mótmælti þessu algjörlega, þannig að ég var heima í dag og búin að vera að bryðja verkjatöflur þannig að ég geti farið hálfan daginn á morgun :)
Byrja líka í sjúkraþjálfunni á morgun þannig að það styttist vonandi í það að ég losni við staurfótinn minn.
Þetta er ekkert annað en brjálað böggandi og leiðinlegt. Ógeðslega lengi að labba þangað sem að ég ætla að labba og enn lengur niður stiga!!!!!!!!!! ekkert mál að tölta upp því þar sníst málið ekki um liðleika í ökkla en á niðurleið snýst heila klabbið víst um það hrimpfh :(
Veit ekki hvort að ég var búin að segja frá því að ég fæ algjörlega að ráða því hvort að ég læt taka skrúfunar og heftin úr fætinum eftir 6-12 mánuði og ef þessir auka hlutir angra mig ekki neitt þá ætla ég bara að halda þeim. Er ekkert hrifin af því að láta svæfa mig og skera í mig og hvað þá ef ég þarf að sprauta mig með blóðþynnandi í viku á eftir einsog eftir aðgerðina, segi nei takk við því ég hata sprautur.
Hef þetta ekki lengra í bili,
þið strumparnir skemmtið ykkur bara.
LoS CryPloS
Pólverjanir voru svo góðir að hlæja af mér þar sem að ég var að skrönglast yfir snjóskaflinn á mínum fallegu hækjum sem sukku hér og þar oní skaflinn
Langar óstjórnlega mikið að fara aftur í vinnuna og gera eitthvað af viti, ekkert vit í því að hangsa heima og lesa bækur og vafra á netinu eða leika sér í tölvuleikjum.
Skrapp til Berglindar á fimmtudaginn, hún "öfundaði"mig svo mikið á því að vera hreyfiheft að hún datt í stiganum heima hjá sér og fór held ég hálf úr liðnum ekki gott en það jafnar sig vonandi fljótt. Ásdís Vala stækkar og stækkar og verður alltaf meira og meira krútt. Fannst mest krúttlegt þegar að hún sat á gólfinu með flugvéla(bílinn) og hreyfillinn var í gangi og hún byrjar að hrista hausinn fram og til baka man ekki eftir að hafa séð svona lítið barn gera þetta en vá hvað hún er mikil rúsína svo sæt.
Svo í ágúst þá er stefnan tekin á kanaríeyjar-fuertventura 2 vikur. Fer með Diddu og Bubbu. Þetta verður feiknar fjör.
Veit ekki hvað ég ætti að babla meira.

